Baknudd · Heilun

Nálægð

Við hverju má búast?

Hver tími hefst á samtali.

Áður en við byrjum gefum við okkur smá stund til að spjalla. Mig langar að skilja hvernig þér líður þann daginn, hvað þú ert að upplifa í líkamanum og hvort það sé eitthvað sem þú vilt skoða eða koma með inn í tímann.

Engir tveir tímar eru eins.

Sumir finna þörf fyrir að deila sögu sinni á meðan aðrir vilja einfaldlega hvíla í þögn. Hvort tveggja er jafn velkomið.

Út frá því flétta ég saman þá nálgun sem hentar þér best og nýti snertingu, hreyfingu, öndun, hljóð og þær mismunandi aðferðir sem ég hef lært.

Umfram allt er mér mikilvægt að þér líði öruggri.

Þú ert alltaf við stjórnvölinn í þinni upplifun. Við förum á þeim hraða sem þér líður vel með – það er ekkert sem þarf að þvinga fram og ekkert sem þú þarft að sanna.

Það þarf að hlusta á líkamann.

Saman sköpum við rými þar sem líkaminn getur slakað á, fengið að njóta athyglinnar og leiðbeint okkur varlega í þá átt sem hann þarfnast mest.

Mýkt og hlustun

Verðskrá

Baknudd · 60 mínTBA
Baknudd · 90 mínTBA
HeilunTBA
Hafa samband →